Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun stendur nú sem hæst og vill stjórn STAG hvetja félagsmenn sína til að nýta atkvæðisrétt sinn. Góðar upplýsingar má finna á upplýsingasíðu félagsins en rétt er að draga hér fram helstu staðreyndir:
- STAG á engan vinnudeilusjóð og því alveg ljóst að hugsanlegar verkfallsbætur yrðu mun lægri en það sem t.d. Efling er að fara að greiða.
- Minnst 50% félagsmanna á kjörskrá verða að greiða atkvæði til að atkvæðagreiðslan verði gild og hreinn meirihluti greiddra atkvæða ræður úrslitum.
- 544 eru á kjörskrá.
- 73 aðilar eru á undanþágulistanum en þeir eru hvattir til að nýta líka atkvæðisrétt sinn!
- Að kvöldi mánudags 17. febrúar var kjörsókn orðin 24%