Áttu myndir? Myndasamkeppni.

Áttu góðar myndir af bústöðunum okkar? Eða nágrenni þeirra og umhverfi þeirra? Inni, úti?

Okkur langar að fá myndir inn á heimasíðuna okkar því myndir segja meira en mörg orð.

Sendu okkur mynd(ir) og hver veit nema þú vinnir helgardvöl í einhverjum bústaða okkar í vetur.

Myndir má senda til birgit@stag.is fyrir 15. september 2013. Munið að hafa þær í góðri upplausn og taka fram í skeyti hvar mynd er tekin og fullt nafn sendanda.

STAG áskilur sér rétt til að nota innsendar myndir á heimasíðu félagsins.