Endurbætur sumarbústaðanna okkar

Dröfn Ágústsdóttir formaður orlofsnefndar fór ásamt fríðu föruneyti tveggja sterkra félaga úr orlofsnefndinni og starfsmanni skrifstofu STAG í leiðangur í Reykjaskóg dag einn í september.  Tilgangurinn var að fegra barnaloftið og gera það upp í báðum bústöðunum okkar.  Lagt var af stað í stórum sendibíl með allt sem átti að fara.

Vonum við að félagar okkar kunni að meta breytingarnar sem voru gerðar og njóti þess að vera í bústöðunum okkar.

Félagið kýs að setja ekki mikið af myndum af bústöðunum á netið sem er opið alheiminum en hér eru tvær myndir af háaloftinu í öðrum bústaðnum eftir framkvæmdir.

        Barnaloft Reykjaskógi        Barnaloft Reykjaskógi