Hótelmiðarnir, veiðikort, útilegukort komið.

Strax EFTIR páskana verður byrjað að selja kortin og hótelmiðana sem við höfum haft til sölu á sumrin.  Útilegukortið, veiðikortið, Fosshótel miðar, Eddu hótel miðar og miðar í Hvalfjarðargöngin. 

Minni á skrifstofutímann okkar sem er mánudagar, miðvikudagar og fimmtudagar milli 12:30  og 15:00. 

Í leiðinni vil ég upplýsa um lokunartíma skrifstofunnar í sumar en skrifstofa félagsins verður lokuð frá 07.júlí til 8.ágúst og verður lítil þjónusta þann tíma.  Því biðjum við félagsmenn að koma tímanlega og kaupa hótelmiða og kort.  Enda gott að panta herbergi með fyrirvara þar sem mikið er nú þegar orðið pantað á hótelum í sumar.