Nýr formaður!

Aðalfundur félagsins fór fram í gær þann 10.júní og þar var kjörinn nýr formaður, Kristján Hilmarsson en fráfarandi formaður okkar Vala Dröfn Hauksdóttir sem hefur verið formaður í sex ár gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku.

Stjórn og félagar þakka Völu Dröfn innilega fyrir öll þau frábæru störf sem hún innti af hendi í formennskutíð sinni, en Vala er aldeilis ekki hætt að starfa með félaginu og ætlar að taka að sér verkefni fyrir félagið, auk þess sem hún var kjörin í varastjórn. 

Í stað Kristjáns var Hallgrímur Viktorsson sem starfar í íþróttamiðstöðinni á Álftanesi kjörinn.

Ný stjórn er þá þannig skipuð:
Formaður           Kristján Hilmarsson
Ritari                  Sigurður Hafliðason
Gjaldkeri             Þorbjörg Kolbeinsdóttir
Meðstjórnandi    Þorgerður Kristinsdóttir
Meðstjórnandi    Hallgrímur Viktorsson
Varafulltrúi          Vala Dröfn Hauksdóttir 

Að öðru leyti var aðalfundurinn samkvæmt venju.  

Þakkar stjórn góðan og skemmtilegan fund í gær!