Orlofshús og orlofsvalkostir

Orlofshús okkar eru að miklu leyti orðin upppöntuð fyrir sumarið, þó eru nokkrar vikur eftir í Skógarbæ og á Hólum í Hjaltadal.  Eins er tjaldvagninn okkar líka eitthvað laus.

Við erum einnig með hótelmiða fyrir félaga, veiðikortið og útilegukortið.  Sala þeirra allra hefur tekið þvílíkan kipp þessa vikuna.  

Minni á að skrifstofan verður lokuð svo til allan júlímánuð eða frá 9.júlí - 11.ágúst en þá verður minni afgreiðsla og lyklaafhending á þjónustuborði bæjarskrifstofanna.

Opnunartíminn okkar er mánudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá 12:30 - 15:00.