Viðgerðir á skrifstofu

Smiðir eru á fullu þessa dagana að gera skrifstofuna okkar fína og breyta og bæta!  Því miður hefur það í för með sér að starfsmaðurinn okkar getur ekki setið þar og unnið á sama tíma og því er enn lyklaafhending í Þjónustuveri og þökkum við þeim stöllum þar mikið fyrir aðstoðina.  Við vonumst til að skrifstofan verði aftur komin í gagnið á mánudaginn 18. ágúst.  Sími félagsins er þó opinn og sjálfsagt mál að hringja í hann á opnunartíma.